Heimild: Reuters
Hans-Peter Zaugg, þjálfari Liechtenstein, hrósaði heims og evrópumeisturum Spánverja í hástert eftir leik liðanna í undankeppni EM í gærkvöldi.
Spánverjar unnu 4-0 og Hans-Peter og lærisveinar hans þökkuðu fyrir að tapið hafi ekki verið stærra.
,,Spánverjar voru ótrúlega sterkir í dag. Ég sé ekki hernig lið getur spilað betur en þeir gerðu," sagði Hans-Peter eftir leik.
,,Leikmenn mínir sögðu, að eins og Spánverjar léku í dag, þá gátu þeir ekki einu sinni komist nógu nálægt þeim til að brjóta á þeim."
,,Þegar við töldum að við hefðum unnið boltann þá töpuðum við honum aftur, það leit út fyrir að við hefðum tvo eða þrjá færri leikmenn en þeir."


