Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. september 2010 07:56
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Frakkar baulaðir af velli eftir tap gegn Hvít-Rússum
Frakkar vilja væntanlega gleyma árinu 2010 sem fyrst þegar kemur að landsliðinu í fótbolta.

Eftir bíóið á HM í sumar, þar sem Frakkar duttu úr leik í riðlakeppninni og allt varð vitlaust í herbúðum liðsins, þá byrjaði undankeppni EM einnig illa í gærkvöldi.

Frakkar töpuðu þá 1-0 heima gegn Hvíta-Rússlandi í fyrsta mótsleiknum undir stjórn Laurent Blanc.

Stuðningsmenn Frakka tóku vel á móti leikmönnum fyrir leik en eftir leik var allt annað upp á teningnum og stuðningsmennirnir bauluðu þegar leikmenn gengu af velli.

,,Ég vil þakka stuðningsmönnum fyrir að koma hingað og styðja okkur," sagði Florent Malouda fyrirliði Frakka við áhorfendur eftir leik.

,,Það er synd að við höfum byrjað þessa keppni á tapi."
Slapp
banner
banner