Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 04. september 2010 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Leikmaður 14. umferðar kvenna: Ég var bara kjáni
Kvenaboltinn
Aldís Kara í leiknum gegn Grindavík.
Aldís Kara í leiknum gegn Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir framherji FH var valin leikmaður 14. umferðar í Pepsi-deild kvenna fyrir frammistöðuna í 5-0 sigri liðsins á Grindavík 10. ágúst en umferðinni lauk ekki fyrr en á miðvikudagskvöld þegar síðasti leikur hennar fór fram.

,,Já, það kom skemmtilega á óvart," sagði Aldís Kara aðspurð hvort valið hafi komið henni á óvart.

,,Mér gekk vel. Liðið spilaði allt vel sem gerði þennan leik eftirminnilegan. Mörkin eru svo kryddið," hélt Aldís Kara áfram en hún skoraði sjálf tvö mörk í leiknum.

Grindavík hafði í umferðinni á undan unnið stóran sigur á Aftureldingu en FH liðið er enn í næst neðsta sæti deildarinnar. En átti Aldís Kara von á svo auðveldum sigri?

,,Nei, ég get ekki sagt það, en við ætluðum klárlega að vinna þennan leik," svaraði hún.

FH liðið hefur verið að gera fína hluti upp á síðkastið og hafði meðal annars náð markalausu jafntefli við Fylki og unnið Aftureldingu í umferðunum á undan. Liðið er þó enn í fallsæti en við spurðum Aldísi Köru hvort hún hefði trú á að liðið næði að bjarga sér.

,,Já, ég hef trú á því. En það þarf þá allt að ganga upp hjá okkur og við verðum líka að treysta á hagstæð úrslit."

FH á næst leik gegn Breiðablik í Kaplakrika klukkan 14:00 í dag en sjálf má Aldís Kara ekki spila þann leik þar sem hún fékk brottvísun í síðasta leik gegn Þór/KA og tekur því út leikbann.

,,Það er ömurlega svekkjandi því ég var bara kjáni að fá þetta spjald," sagði hún. ,,Ég hef fulla trú á því að við vinnum þær á okkar heimavelli."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner