Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 04. september 2010 08:30
Hafliði Breiðfjörð
Leikmaður 15. umf: Taldi þá að hann hefði ekki trú á mér
Kvenaboltinn
Markahrókurinn Kristín Ýr Bjarnadóttir er leikmaður 15. umferðar.
Markahrókurinn Kristín Ýr Bjarnadóttir er leikmaður 15. umferðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það kom mér auðvitað á óvart að vera valin þar sem ég taldi þá að hann hefði ekki trú á mér.''
,,Það kom mér auðvitað á óvart að vera valin þar sem ég taldi þá að hann hefði ekki trú á mér.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristín Ýr í leik með Val.
Kristín Ýr í leik með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Ég þakka bara fyrir valið. Ég veit ekki hvernig leikmenn í örðum liðum en Val og KR stóðu sig í þessari umferð en ég tel að ég geti deilt þessum "titli" í 16 parta þar sem mér fannst við Valsstúlkur allar góðar í þessum leik og ekki hægt að segja ein hafi verið betri en önnur," sagði Kristín Ýr Bjarnadóttir Vals sem var valin leikmaður 15. umferðar í Pepsi-deild kvenna hér á Fótbolta.net.

,,Ég hef átt marga miklu betri leiki í sumar þar sem ég hef kannski ekki skoraði en líka nokkra slakari leiki. En auvðitað snýst mín staða svolítið um að skora svo það lítur vel út á blaði að vera með þrennu ég viðurkenni það," hélt hún áfram.

Það eru ekki nema tvö ár síðan Valur og KR voru tvö bestu kvennalið landsins og skiptu stóru titlunum á milli sín. Í dag er öldin önnur og Valur burstaði leikinn 7-0. En kom það Kristínu á óvart hversu mikill munur var á liðunum?

,,Það er auðvitað ekki hægt að líkja þessum liðum saman, ég held að það sé ekki einn leikmaður í liðinu í dag sem var 2008 svo að ég bjóst kannski ekki við að vera að fara að spila á móti þeim sem voru þá en svona er þetta bara, tímarnir breytast," sagði hún.

Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir af mótinu og titillinn í augsýn hjá Val enda með fjögurra stiga forskot. Liðið leikur á útivelli í lokaumferðinni gegn Breiðablik en ætla þær sér ekki að klára þetta sem fyrst svo titillinn fari á loft á heimavelli í næst síðustu umferðinni?

,,Það er rétt, við förum í alla leiki til að vinna þá og ætlum við að tryggja okkur titilinn við fyrsta tækifæri," sagði Kristín Ýr en liðið á næst leik gegn Aftureldingu í dag. Leik sem átti fyrst að fara fram 14:00 en var færður til 17:00 í gær.

,,Þessi leikur leggst bara vel í mig. Ég er bara glöð yfir því að honum er seinkað til 17.00 mér finnst þetta góður tími. Það verður gaman að spila við þetta lið því ég hef heyrt að þetta sé allt annað lið en við spiluðum við í fyrri umferð, með nýjan þjálfara og betra skipulag. Svo þetta er eins og að spila við nýtt lið og það er alltaf gaman. Ég býst við því að þær séu ákveðnar í að hefna fyrir fyrri leikinn okkar," sagði Kristín Ýr en fyrri leik liðanna lauk með 10-0 sigri Vals.

Kristín Ýr hafði komið í viðtal við Fótbolta.net eftir sigur Vals í bikarúrslitaleiknum í síðasta mánuði og sagðist þar ekki búast við að verða valin í landsliðið, enda hefði landsliðsþjálfarinn ekki trú á sér. Svo fór á endanum að daginn eftir valdi Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari hana í leikmannahóp sinn.

,,Já það kom mér auðvitað á óvart að vera valin þar sem ég taldi þá að hann hefði ekki trú á mér. En hann valdi mig í þetta verkefni og það sýnir að hann hefur trú á mér," sagði hún en býst hún við áframhaldandi vali í landsilðið?

,,Ég held allavega áfram að lifa lífinu og spila fótbolta svo sjáum við bara hvernig þetta rúllar á næsta ári."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner