Valur á möguleika á að verða Íslandsmeistari í kvennaflokki í dag en til þess af af því verði yrði reyndar allt að ganga upp. Að sama skapi gætu Haukar fallið niður í 1. deild.
Valur er á toppi deildarinnar með 36 stig, fjórum stigum meira en Breiðablik sem er í öðru sætinu, og fimm stigum meira en Þór/KA. Eftir daginn í dag verða aðeins sex stig í pottinum, tvær umferðir.
Til að liðið geti orðið Íslandsmeistari þurfa þær að vinna Aftureldingu á útivelli og treysta á að FH vinni Breiðablik og Þór/KA vinni ekki Stjörnuna, svo þetta er nokkuð langsótt en ef af yrði þá yrði þetta 100. stóri titill Vals.
Á botninum eru Haukar nánast fallnir fyrir daginn í dag, í botnsætinu með 5 stig. Grindavík sem er í þriðja neðsta sæti hefur 14 stig, og 9 stig í pottinum. Ef Grindavík vinnur Hauka í dag þá falla Haukar.
FH liðið á þó meiri möguleika en litlir eru þeir. Ef FH tapar fyrir Breiðablik í dag og Grindavík vinnur Hauka þá þyrfti FH að vinna síðustu tvo leiki sína og treysta á að Afturelding tapi sínum.
Umferðin í dag fer ekki fram á sama tíma, fjórir leikir hefjast 14:00 og viðureign Aftureldingar og Vals klukkan 17:00. Það þýðir að ef önnur úrslit færu að óskum fyrir Val myndu þær vita fyrir leikinn gegn Aftureldingu að sigur myndi færa þeim Íslandsmeistaratitilinn.
Leikir dagsins:
14:00 Grindavík - Haukar
14:00 KR - Fylkir
14:00 FH - Breiðablik
14:00 Stjarnan - Þór/KA
17:00 Afturelding - Valur
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |



