,,Þeir bara refsuðu okkur fyrir tvenn mistök sem við gerðum og það var aldrei spurning, þeir voru bara betri en við," sagði Njáll Eiðsson þjálfari Víðis eftir 4-2 tap gegn BÍ/Bolungarvík á útivelli í dag.
,,Það er ekkert auðvelt framhald. Við vorum hálf vængbrotnir í dag og vantaði svolítinn mannskap. En við eigum eftir tvo leiki og ég veit svosem ekki hvernig hinir leikirnir fóru en það er alveg ljóst að það er mjög snúið."
,,Við eigum eftir að fara í Ólafsvík og svo eigum við heimaleik í síðasta leik. Það er aldrei búið fyrr en það er búið, langt í frá. Það er engin uppgjöf í okkur en við spiluðum við næst besta liðið í deildinni. Ég vil óska þeim til hamingju með að vera komnir með lið í 1. deild. Það er frábært."
,,Að vestfirðirnir skuli vera loksins komnir með lið í næst efstu deild og vonandi fara þeir bara lengra."
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |






















