,,Þetta er bara æðislegt, það er ekkert öðruvísi," sagði Sigþór Snorrason leikmaður BÍ/Bolungarvíkur eftir að liðið tryggði sér sæti í 1. deild karla að ári með 4-2 sigri á Víði í dag.
,,Í rauninni var markmiðið frá í fyrra að gera betur. Við teljum okkur standa í öllum 1. deildarliðum sem við mætum, og þess vegna öllum liðum sem við mætum. Það er ekkert því til fyrirstöðu að við förum lengra næsta ár."
,,Ég held að við höfum bara verið orðnir gráðugir þegar við vorum komnir í 2-0. Það vildu allir skora og tryggja okkur ennþá betur í 1. deildina."
Nánar er rætt við Sigþór í sjónvarpinu hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























