Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 05. september 2010 10:04
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Hargreaves og Bebe ekki í Meistaradeildarhóp Man Utd
Meiðslapésinn Owen Hargreaves kemst ekki í leikmannahópinn sem Manchester United hefur tilkynnt fyrir Meistaradeild Evrópu og það sama er að segja um Bebe sem var keyptur frá Portúgal í sumar.

Hargreaves hefur aðeins leikið einn leik þar sem hann kom inná sem varamaður á síðustu tveimur árum en meiðsli hafa hrjáð hann lengi.

Hann var reyndar tilkynntur sem einn af 25 leikmönnum liðsins fyrir ensku úrvalsdeildina en verður ekki í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

UEFA leyfir félögum aðeins að tilkynna 25 leikmenn en United tilkynnti aðeins 24 svo fjarvera Bebe vakti enn meiri spurningar miðað við að hann hafi kostað rúmar 7 milljónir punda þegar hann var keyptur í sumar.
Slapp
banner
banner