Heimild: AP
Ottmar Hitzfeld landsliðsþjálfari Sviss er hundfúll út í stuðningsmenn landsliðsins sem bauluðu á framherjann og fyrirliðann Alex Frei eftir að hann misnotaði vítaspyrnu á 60. mínútu vináttuleiks liðsins gegn Ástralíu á föstudag.
14.660 áhorfendur mættu á AFG Arena til að horfa á leikinn og sáu þegar Frei sem er markahæsti leikmaður Sviss frá upphafi með 40 mörk misnotaði vítaspyrnuna í leiknum sem lauk með 0-0 jafntefli.
Nokkrum mínútum síðar tók Hitzfeld framherjann af velli til að hlífa honum fyrir áhorfendum.
,,Viðbrögð almennings eftir að Frei misnotaði vítaspyrnuna olu mér vonbrigðum. Alex á ekki skilið að fá svona meðferð," sagði Hitzfeld eftir leikinn.
,,Núna verðum við að íhuga hvar við spilum næstu heimaleiki okkar."



