Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 05. september 2010 12:37
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Daily Mail 
Hélt Rooney framhjá óléttri eiginkonunni með vændiskonu?
Breska slúðurblaðið Daily Mail segir að Wayne Rooney framherji Manchester United hafi ítrekað haldið framhjá óléttri eiginkonu sinni með vændiskonu. Á hann að hafa viðurkennt þetta fyrir henni í gærkvöldi.

Rooney giftist eiginkonu sinni fyrir tveimur árum en nú er talið ólíklegt að samband þeirra muni endast, þrátt fyrir að þau eigi tiltölulega nýfætt barn. Segir vændiskonan Jennifer Thompson, sem rukkar 1.200 pund fyrir kvöldið, að hún hafi sofið sjö sinnum með Rooney á fjórum mánuðum.

Hún segir að þau hafi stundað kynlíf á flottustu hótelum Manchesterborgar og farið saman á næturklúbba og spilavíti. Hún segir einnig að hann hafi boðið henni á heimili sitt á meðan eiginkonan var í burtu.

Breska blaðið kennir vandræðunum í einkalífi hans um slakt gengi hans undanfarna mánuði, en Rooney þótti eiga skelfilegt heimsmeistaramót og hafði ekki skorað síðan í mars fyrir félag sitt né landslið, þar til um daginn. Samt sem áður mun leikmaðurinn halda til Sviss ásamt enska landsliðinu.
Slapp
banner