Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   sun 05. september 2010 16:35
Hafliði Breiðfjörð
Jón Ólafur: Stefnum á að vinna úrvalsdeild
Kvenaboltinn
Jón Ólafur á hliðarlínunni í dag.
Jón Ólafur á hliðarlínunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þú ferð í deild og allar deildir snúast bara um að vinna, það er ekkert öðruvísi í úrvalsdeild, við stefnum bara á að reyna að vinna hana," sagði Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV eftir að liðið tryggði sér sigur í 1. deild kvenna með 3-1 sigri á Þrótti í Þorlákshöfn.

,,Þetta var frábært. Maður ætlaði að reyna að fara hæfilega afslappaður í leikinn fyrst við vorum komnar upp en þetta var úrlitaleikur í keppni og maður vill vinna, þetta var glæsilegt."

ÍBV komst yfir með marki Hlífar Hauksdóttur beint úr hornspyrnu en fékk svo mark beint í kjölfarið á sig.

,,Ég var hundfúll og þetta var algjört kæruleysi í mínum mönnum þetta mark. Þær héldu greinilega að fyrst vorum komnar í 1-0 þá myndi vindurinn klára restina. En þetta var flott hjá Þróttarstelpum að koma svona til baka, en sem betur fer kláruðum við allan leikinn."

Nánar er rætt við Jón Óla í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner