Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 05. september 2010 22:13
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Given ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá Manchester City
Shay Given, markvörður Manchester City, ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá liðinu. Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur mátt sætta sig við að vera á bekknum í fyrstu leikjum tímabilsins þar sem Joe Hart er orðinn aðalmarkvörður City.

Given var orðaður bæði við Arsenal og Fulham en eftir lokun félagaskiptagluggan er ljóst að hann mun ekki fara neitt.

,,Ég verð að leggja hart að mér og reyna að komast aftur í liðið," sagði Given.

,,Ég tel að ég hafi ekki gert margt rangt síðan ég kom til félagsins svo ég býst við að þetta snúist um að sanna að stjórinn hafi rangt fyrir sér og leggja hart að sér að komast aftur í liðið. Ef ég fæ tækifærið verð ég að nýta það og sjá hvað gerist."

,,Þetta er pirrandi en svona er lífið hjá stóru félagi sem getur keypt eins marga leikmenn og það vill. Þú verður að vera þolinmóður."

Slapp
banner
banner