Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Newcastle með franskan miðjumann á reynslu
Newcastle United er með franska miðjumanninn Nacim Bouhelifa á reynslu.

Þessi 19 ára gamli leikmaður hafnaði nýjum samningi hjá Lens í sumar og því er hann án félags.

Boukhelifa æfði með Manchester City fyrr í sumar en fékk ekki samning þar.

Chris Hughton, stjóri Newcastle, hefur núna ákveðið að skoða Bouhelifa og það ætti að skýrast á næstu dögum hvort hann muni fá samning hjá félaginu.
Slapp
banner
banner
banner
banner