Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 06. september 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Alan Hutton biður Tottenham um að lækka verðmiðann
Skoski bakvörðurinn Alan Hutton hefur beðið Tottenham um að lækka verðmiðann á sér.

Hutton er á eftir Vedran Corluka og Younes Kaboul í röðinni hjá Tottenham og hann vill komast burt frá félaginu.

,,Þetta hefur verið erfitt fyrir mig. Ég var að skoða möguleika mína í sumar en ekkert gerðist," sagði Hutton sem kom til Tottenham frá Rangers á níu milljónir punda.

,,Ég fór til Spurs fyrir háa fjárhæð og ef ég fer þá vill félagið fá háa fjárhæð. Það er erfitt að fá einhvern til að borga svona upphæð þegar þú hefur ekki verið að spila."

,,Þetta er ekki góð staða til að vera í. Ég þarf bara að bera höfuðið hátt og halda áfram."

Slapp
banner
banner
banner