Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 06. september 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Paul Konchesky: Get ekki beðið eftir að spila með Liverpool
Vinstri bakvörðurinn Paul Konchesky er hæstánægður með að fá tækifæri til að leika með Liverpool.

Þessi 29 ára gamli leikmaður kom til Liverpool frá Fulham í síðustu viku og hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Birmingham um næstu helgi.

,,Ég er 29 ára og þetta er síðasta tækifæri mitt til að spila á meðal þeirra bestu. Liverpool er þar og ég hlakka til," sagði Konchesky.

,,Ég get ekki beðið eftir að spila í Liverpool treyju í ensku úrvalsdeildinni, þetta er stórt félag og stórt skref fyrir mig."
Slapp
banner
banner
banner