Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 09:02
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Daily Mail 
Barcelona geymir fjarkann fyrir Fabregas
Enska dagblaðið Daily Mail fullyrðir í dag að Barcelona hafi ákveðið að úthluta ekki treyjunúmerinu 4 fyrir komandi leiktíð þar sem beðið sé eftir Cesc Fabregas.

Fabregas var orðaður við Barcelona í allt sumar en nú þegar er ljóst að hann spila áfram með Arsenal tímabilið sem var að hefjast.

Þrátt fyrir það hefur treyjunúmerinu 4 sem Fabregs klæðist hjá Arsenal ekki verið úthlutað hjá Barcelona og Daily Mail segir það geymt fyrir leikmanninn.

,,Ef kaupin hafa ekki klárast þetta árið þá gerast þau á því næsta," sagði Xavi miðjumaður Barcelona á dögunum og Andrés Iniesta liðsfélagi hans talaði á svipaðan máta og sagði leikmanninn vilja koma.
Slapp
banner