Heimild: AP
Raymond Domenech fyrrverandi landsliðsþjálfari Frakka hefur verið rekinn úr síðasta starfinu sem hann átti eftir hjá franska knattspyrnusambandinu en ástæðan er hans hlutur í slæmu gengi Frakka á Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku.
Sambandið mun hafa sent Domenech undirskrifað uppsagnarbréf á fimmtudag en hann var rekinn úr nefnd tæknilegra ráðgjafa sambandsins að sögn sjónvarpsstöðvarinnar France-3 TV í gær.
Hann hefur verið í þessari nefnd allt frá því árið 1993 og fékk 10 þúsund evrur fyrir á mánuði.
Ástæða uppsagnarinnar er þríþætt, hvernig hann tók á máli Nicolas Anelka á Heimsmeistaramótinu, verkfall leikmanna liðsins á æfingu og það að hann neitaði að taka í hönd Carlos Alberto Parreira þjálfara Suður Afríku eftir 2-1 tap.



