Heimild: AFP
Didier Drogba sagði í gær að hann hafi engan hug á að hætta að leika með landsliði Fílabeinsstrandarinnar.
,,Í hvert sem þeir munu velja mig, mun ég mæta," sagði Drogba sem er 32 ára gamall við sjónvarpsstöðina TF-1.
Hann hefur skorað 45 mörk í 71 landsleik með Fílabeinsströndinni.
Hann var ekki í leikmannahópi Francois Zahoui fyir undankeppni Afríkumótsins gegn Rúanda um helgina þrátt fyrir að hópurinn hafi talið 21 leikmann.
Zahoui sagði að eftir samtal við Drogma hafi hann talið framherjann ekki nógu góðan líkamlega til að spila leikinn.


