Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 29. mars 2013 14:30
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Dirty Tackle 
Ítalskt lið með áhorfendur úr pappa
Troðfull stúka?  Nei, ljósmynd.
Troðfull stúka? Nei, ljósmynd.
Mynd: Yahoo
Ítalska B-deildar liðið Triestina hefur undanfarin ár farið óhefðbundna leið í sjónvarpsleikjum sínum.

Liðið leikur á leikvangi sem tekur 32.454 áhorfendur í sæti en þegar mætingin var farin að versna til muna ákvað félagið að loka einum hluta stúkunnar, Colaussi stúkunni.

Í stað þess að láta leikmenn liðsins leika fyrir framan tóm sæti fundu forráðamenn félagsins upp á undarlegri lausn.

Þeir settu myndir af áhorfendum yfir alla stúkuna svo það líti út fyrir að hún sé full, svo verður hver að dæma fyrir sig hvort það heppnist en það má allavega ekki segja að þetta séu háværir áhorfendur.
Slapp
banner