Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 08:36
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
FIFA ætlar ekki að koma í veg fyrir notkun myndbandsupptaka
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, ætlar ekki að standa í vegi fyrir knattspyrnusamböndum sem vilja notast við myndbandsupptökur til að refsa leikmönnum sem eru sekir um leikaraskap.

Skoska knattspyrnusambandið hafði viljað gera þetta fyrir tveimur árum síðan en FIFA mælti gegn því þar sem það væri ekki í samræmi við reglur sambandsins.

FIFA hefur nú skipt um skoðun í málinu og leyfir ástralska knattspyrnusambandinu að refsa tveimur leikmönnum fyrir að láta sig falla en báðir fá þeir tveggja leikja bann fyrir að sækja sér vítaspyrnur með þessum hætti.
Slapp
banner