Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 06. september 2010 06:00
Hafliði Breiðfjörð
ÍR vantar þjálfara fyrir 7. flokk kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Knattspyrnudeild Íþróttafélags Reykjavíkur óskar eftir að ráða þjálfara fyrir 7. flokk kvenna. Knd ÍR starfrækir alla kvennaflokka sem í boði eru og er kvennafótboltinn í hraðri sókn.

Tilvonandi þjálfari kemur til með að aðstoða við uppbyggingu kvennastarfsins og er hugsaður sem framtíðarþjálfari hjá félaginu.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Halldór Þ. Halldórsson yfirþjálfari knattspyrnudeildar í síma 891-6320. Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á [email protected] fyrir laugardaginn 11.september.

Æskilegt er að viðkomandi hafi sótt námskeið KSÍ, sé íþróttafræði menntaður eða hafi mikinn áhuga/reynslu á knattspyrnuþjálfun. Viðkomandi myndi hefja störf sem fyrst. Kvennþjálfarar eru sérstaklega hvattir til þess að sækja um.
Slapp
banner
banner
banner