Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 10:21
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Bayern neitaði Gomez um að fara til Liverpool
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið úr ensku götublöðunum og setja á einn stað.

Mario Gomez framherji Bayern Munhcen segir að þýska félagið hafi neitað honum um að fara á láni til Liverpool í lok félagaskiptagluggans. (Bild)

Arsenal ætlar að reyna að fá Oriol Romeu 18 ára djúpan miðjumann Barcelona. (IM Scouting)

Cagliari á Ítalíu segist vilja selja Federico Marchetti í janúar og Manchester City og Chelsea hafa áhuga á þessum 27 ára gamla markverði. (IM Scouting)

Nigel Pearson stjóri Hull vill ná í framherjann Matty Fryatt frá Leicester og skipta á honum og miðverðinum Kamil Zayatte. (Daily Mirror)

Derby mun reyna að fá Chris Woods á láni frá WBA en sá spilaði alla leiki Nýja Sjálands á HM í sumar. (Daily Mirror)

Gordon Strachan stjóri Middlesbrough vill fá Jason Pearce fyrirliða Bournemouth. (Daily Mirror)

Wayne Rooney gæti enn misst af leik Englendinga gegn Sviss annað kvcöld eftir að Fabio Capello landsliðsþjálfari átti krísufund með honum vegna frétta fjölmiðla um framhjáhald hans. (Daily Mirror)

Gerard Houllier mun ákveða í dag hvort hann taki við sem knattspyrnustjóri Aston Villa. (The Sun)

Houllier mun íhuga að fá Phil Thompson með sér í starfið en sá aðstoðaði hann á sínum tíma með Liverpool. (Daily Express)
Slapp
banner
banner