Heimild: BBC
Wayne Rooney framherji Manchester United og enska landsliðsins fór með hópnum í leikinn gegn Sviss í undankeppni EM 2012 annað kvöld þrátt fyrir fréttir enskra fjölmiðla af framhjáhaldi hans.
Enska knattspyrnusamandið hefur staðfest að Rooney hafi farið með í ferðina ásamt öðrum úr hópnum en Fabio Capello landsliðsþjálfari mun svo taka ákvörðun um hvort framherjinn er í réttu hugarástandi til að spila.
News of the World og Sunday Mirror birtu fréttir af framhjáhaldinu í gær og götublöðin í dag eru uppfull af fréttum um það í dag.
Rooney hafði verið með í 4-0 sigri Englands á Búlgaríu á föstudagskvöld.



