Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 11:09
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Blackpool missti af Nugent - Svaraði ekki í símann
Blackpool mistókst að krækja í David Nugent framherja Portsmouth áður en félagaskiptaglugginn lokaði í síðustu viku en ástæðan er sú að leikmaðurinn svaraði ekki símtölum.

Búið var að samþykkja að Nugent færi til Blackpool en ekki náðist í leikmanninn sjálfan til að fá undirskrift hans áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

,,Ef að leikmaðurinn hefði ekki horfið þá hefðum við fengið David Nugent," sagði Ian Holloway stjóri Blackpool.

,,Þegar voru tuttugu mínútur eftir vorum við með samning um Nugent en enginn vissi hvar hann var svo við gátum ekki klárað samninginn."
Slapp
banner
banner