Heimild: Soccerway
Ian Wright, fyrrum framherji enska landsliðsins, segir að Jermain Defoe sé betri en David Villa framhejri Barcelona og spænska landsliðsins.
,,Það er mikið talað um bestu framherja í Evrópu, þar á meðal David Villa en Jermain er jafngóður og hann er að verða betri," sagði Wright.
,,Fólk áttar sig ekki á því hversu mikið leikmenn eins og Jermain leggja á sig."
,,Þetta snýst ekki bara um að mæta á æfingu á hverjum degi. Hann er frábær atvinnumaður, drekkur ekki og mætir í líkamsræktina."


