Heimild: Sporting Life
Mario Gomez, framherji FC Bayern, segist hafa fengið tilboð frá Liverpool áður en félagaskiptaglugginn lokaði í síðustu viku.
Gomez hefur ekki átt fast sæti hjá Bayern og hann var til í að fara á láni til Liverpool. Þýska félagið ákvað hins vegar á endanum að leyfa Gomez ekki að fara.
,,Ég hef sagt að ef ég fer frá Bayern þá fer ég erlendis," sagði Gomez við Bild.
,,Það kom áhugavert tilboð frá Liverpool. Ég tók það tilboð alvarlega og ræddi það við fjölskylduna mína og kærustuna því ég vil bara spila."
,,Bayern sagði hins vegar að þeir sjá framtíð mína hér og þess vegna kom þetta ekki til greina lengur."


