Andri Júlíusson fór á kostum þegar ÍA sigraði Gróttu 6-1 í fyrstu deildinni í fyrradag. Andri skoraði þrennu og lagði upp eitt mark en hann er leikmaður 20.umferðar í fyrstu deild karla.
Aldur: 25 ára
Leikir með ÍA: 109 leikir og 31 mark
Uppáhalds lið á England: Manchester United
Uppáhalds knattspyrnumaður: David Beckham
,,Þetta var mjög flott. Við strákarnir erum að reyna að hafa gaman að þessu, safna eins mörgum stigum of við getum og skora eins mikið og við getum. Fyrir utan Selfoss leikinn í bikarnum þá var þetta einn af okkar betri leikjum."
Andri er núna markahæsti leikmaður ÍA með sjö mörk líkt og Hjörtur Júlíus Hjartarson.
,,Ég meiddist aðeins um mitt tímabil og missti af nokkrum leikjum. Þá missti ég Hjört (Hjartarson) og Arnar Már (Guðjónsson) fram úr mér en það er gott að vera búinn að ná þeim og gott að vera farinn að skora aftur."
Skagamönnum var spáð góðu gengi fyrir mót en liðið hefur ekki náð að uppfylla þær væntingar.
,,Við ætluðum okkur upp, við ljúgum engu með það. Því miður hefur þetta ekki gengið eins og við ætluðum okkur enda hafa margir verið í meiðslum, sérstaklega varnarlega."
,,Ef að einbeitingin hefði verið til staðar síðustu tíu mínúturnar í þremur leikjum þá værum við að berjast við toppinn. Við gerum alltof mikið af jafnteflum. Við erum með átta jafntefli og ef við myndum breyta fjórum jafnteflum í sigur þá værum við nálægt toppnum í þessari deild," sagði Andri en ÍA stefnir á að fara upp á næsta ári.
,,Það hefur verið stefna klúbbsins frá því að við féllum 2008 og það verður reynt af afli á næsta ári."
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var mættur á leikinn á Akranesi á laugardag og Andri vonast til að hafa náð að heilla hann.
,,Það er auðvitað alltaf gaman þegar manni er sýndur áhugi. Að sjálfsögðu vilja allir spila í efstu deild og einnig í Evrópukeppninni."
,,Núna er ég leikmaður ÍA og verð það út september allavega. Síðan skoðum við hvað gerist, hvort honum hafi líkað þessi þrenna eða hvað," sagði Andri léttur í bragði að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 19.umferðar: Marteinn Briem (Víkingur R.)
Leikmaður 18.umferðar: Sigurður Egill Lárusson (Víking)
Leikmaður 17.umferðar: Hólmbert Aron Friðjónsson (HK)
Leikmaður 16. umferðar: Eyjólfur Tómasson (Leiknir R.)
Leikmaður 15. umferðar: Erlingur Jack Guðmundsson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar: Gunnar Einarsson (Leiknir R.)
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)




