Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 19:32
Matthías Freyr Matthíasson
Olsen: Kallar eftir sigri
Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Morten Olsen landsliðsþjálfari Dana kallar eftir sigri á morgun yfir Íslandi til þess að ná góðri stöðu í riðlinum í undankeppni EM.

,,Við verðum að vinna til þess að ná góðri stöðu í riðlinum, það er ljóst," sagði Olsen.

,,Þeir eru erfiðir og líkamlega sterkir og þeir geta spilað fótbolta. Það sást í leiknum hjá þeim á móti Noregi þar sem mér fannst Ísland vera betri."

,,Ég hef séð þá spila í vor og einnig í Ágúst. Þeir hafa einnig sterkt U21 árs landslið og hafa þeir fært 3 leikmenn úr því liði í A-landsliðið og það gefur þeim aukna möguleika en áður"
Slapp
banner
banner