Þá er komið að liðnum ,,Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni er stemningin skoðuð hjá Víkingi R. sem er á toppnum í fyrstu deild karla þegar tvær umferðir eru eftir.
Helgi Sigurðsson fyrirliði liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr "Hvað er að frétta?"
Að þessu sinni er stemningin skoðuð hjá Víkingi R. sem er á toppnum í fyrstu deild karla þegar tvær umferðir eru eftir.
Helgi Sigurðsson fyrirliði liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr "Hvað er að frétta?"
Hvernig er stemningin hjá Víkingi? Hún er mjög góð. Það hefur verið frábær stemming í kringum allt starfið. Við erum í baráttu um að komast upp og þá er mikil spenna í loftinu. Það er mikil tilhlökkun líka að klára leikina en við vitum að það verður erfitt.
Er stuðningurinn við liðið góður? Já hann hefur verið góður og fer vaxandi eftir því sem á líður. Það hafa æ fleiri mætt á völlinn eftir því sem liðið hefur á tímabilið. Það er mikil stemming meðal stuðningsmanna og við Víkingar viljum koma liðinu upp.
Ertu ánægður með gengi og spilamennsku Víkings í sumar? Ég er ánægður með gengið hingað til, það hefur verið mjög gott. Við erum efstir eins og staðan er núna og getum ekki kvartað yfir því. Auðvitað hafa komið daprir leikir inn á milli en það er eins og vill verða í löngu móti. Í heildina myndi ég segja að við séum mjög sáttir en það telur lítið ef við klárum ekki dæmið. Við höfum oft getað spilað betur en við höfum gert en við höfum náð að sigla stigunum í hús. Hópurinn er það sterkur að þó að menn eigi ekki sinn besta dag þá höfum við samt náð að klára leikina og það sýnir styrkleika hópsins.
Er mikil spenna í leikmannahópnum fyrir tvo síðustu leikina? Mjög mikil spenna. Menn geta varla beðið eftir að klára þetta. Það verða mjög erfiðir leikir og við þurfum aldeilis að vera á tánum til að klára þá. Auðvitað er mikil spenna og fiðringur í maganum hjá leikmönnum og þeim sem að þessu standa. Við erum staðráðnir í að klára þetta en við þurfum að vera með 100% einbeitingu ef það á að takast því það eru tveir mjög erfiðir leikir framundan.
Finnur þú sjálfur mikinn mun á úrvals og fyrstu deildinni? Já, að mörgu leyti er fyrsta deildin erfiðari að spila í. Það er meiri hamgangur og læti. Í úrvalsdeildinni færðu oft meiri tíma þar sem bæði lið eru að reyna að spila fotbolti. Ég myndi segja að mörgu leyti sé erfiðara að vera í fyrstu deildin þar sem lætin eru meiri en gæðin eru betri í úrvalsdeildinni, það segir sig sjálft. Þetta kom mér samt ekki svo mikið á óvart þar sem ég hafði prófað þetta áður með Fram og vissi að hverju ég gekk.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um: Árið 1971 varð Víkingur bikarmeistari í knattspyrnu. Liðið spilaði þá í næstefstu deild en ekkert annað lið hefur orðið bikarmeistari þegar það spilar í næstefstu deild.
Eitthvað að lokum? Ég vona að allir Víkingar flykkist að og mæti á síðustu tvo leikina hjá okkur og haldi áfram að styðja við okkur eins og þeir hafa gert í sumar og við í sameingu fleytum liðinu upp í úrvalsdeild.



