Heimild: Sky
Dirk Kuyt, leikmaður Liverpool og hollenska landsliðsins, verður væntanlega frá keppni næstu vikurnar vegna axlarmeiðsla.
Kuyt meiddist á æfingu með hollenska landsliðinu í morgun þegar hann lenti illa.
Kuyt verður ekki með Hollendingum gegn Finnum í undankeppni EM annað kvöld og óttast er að hann verði frá í einhverjar vikur.
,,Hann verður líklega frá í nokkrar vikur og klukkan 4 í dag mun hann fara í flugvél til Liverpool," sagði Bert van Marwijk landsliðsþjálfari Hollendinga.




