Heimild: Goal
Mano Menezes nýr þjálfari brasilíska landsliðsins hefur sagt hvað honum finnst um möguleika Ronaldinho að komast í brasilíska hópinn.
Ronaldinho komst, eins og frægt er, ekki í lokahóp Brasilíu fyrir nýliðna Heimsmeistarakeppni landsliða í Suður-Afríku.
Ronaldinho komst, eins og frægt er, ekki í lokahóp Brasilíu fyrir nýliðna Heimsmeistarakeppni landsliða í Suður-Afríku.
Nú hefur Menezes sagt að Ronaldinho fái tækifæri ef honum tekst að spila vel með félagsliði sínu AC Milan á Ítalíu.
,,Ronaldinho í landsliðið? Ég er að vinna að plönum fyrir HM 2014. Dinho er ekki of gamall og mun ekki vera það fyrir Brasilíu," sagði þjálfarinn við ítalska blaðið La Gazzetta dello Sport.
,,Hæfileikar hans eru óneitanlegir og síðasta tímabil hans hjá Milan var gott en þau tvö eða þrjú á undan því voru léleg. Ef hann snýr til gamla sjálfs síns aftur þá mun ég biðja hann um að spila með landsliðinu."


