Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   mán 06. september 2010 19:41
Matthías Freyr Matthíasson
Óli Jóh: Alveg ljóst að danirnir verða meira með boltann
Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu sat fyrir svörum á blaðamannafundi á Parken, þjóðarleikvangi Dana nú í kvöld. Umræðuefnið var landsleikur Danmerkur og Íslands sem fram fer annað kvöld á Parken. Þar ræddi Ólafur meðal annars hvernig undirbúningnum hefði verið háttað fyrir leikinn og möguleika Íslenska liðsins í leiknum.

,,Undirbúningurinn hefur verið fínn, við hristum þennan Noregsleik af okkur nánast strax á föstudagskvöldið og undirbúningurinn hefur gengið mjög vel. Við tókum eina æfingu strax á laugardagsmorgninum á Íslandi og búnir að taka tvær hérna í Danmörku og ein framundan, þannig að það hefur gengið bara mjög vel"

Eru allir mennirnir heilir?

,,Það er enginn meiddur sem er í þessu hóp, það er spurning með Árna Gaut en það verður tekið síðasta test núna á eftir. Hann er eina spurningin"

Verður þessi leikur lagður upp öðruvísi en á móti Noregi.

,,Já við komum til með að gera það. Á móti Noregi töldum við að ættum að geta unnið þann leik og fórum í þann leik með það hugafar og þannig lögðum við þann leik upp. Núna eru við að spila við miklu sterkara lið og það er alveg ljóst að danirnir koma til með að vera meira með boltann heldur en við "

Þetta og fleira er rætt á blaðamannafundinum sem sýndur er hér að ofan.
Slapp
banner