Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 22:10
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Taylor ekki með Newcastle þar til í október
Chris Hughton, stjóri Newcastle, hefur greint frá því að Steven Taylor muni ekki snúa aftur í liðið fyrr en í næsta mánuði.

Taylor er að jafna sig af axlarmeiðslum en hann var á dögunum settur á sölulista eftir að hann hafnaði nýjum samningi.

,,Hvað Steve varðar þá erum við að horfa á fimm vikur (í endurkomu)," sagði Chris Hughton stjóri Newcastle.

,,Við munum halda áfram að skoða stöðuna eins og með öll meiðsli. Hann hefur ennþá hlutverk hjá Newcastle."
Slapp
banner
banner
banner