Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 06. september 2010 21:18
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Færeyingar ósáttir á Ítalíu - Tæki kindur mánuð að borða grasið
Færeyingar eru ekki ánægðir með grasið á Ítalíu.
Færeyingar eru ekki ánægðir með grasið á Ítalíu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brian Kerr, landsliðsþjálfari Færeyinga, er allt annað en ánægður með æfingaaðstöðuna sem liðið hefur fengið að nota á Ítalíu fyrir leik liðanna í undankeppni EM annað kvöld.

Færeyingar hafa verið að æfa á Ponte a Niccheri svæðinu í Flórens en Christian Mouritsen leikmaður liðsins er tæpur fyrir leikinn eftir að hafa meiðst á ökkla á vellinum.

,,Grasið á æfingasvæði okkar er svo hátt að það tæki allar kindurnar í Færeyjum mánuð að borða það," sagði Kerr ósáttur.

Ítalir æfa sjálfir á Coverciano æfingasvæðinu sem er talið vera eitt það besta í heimi.
Slapp
banner
banner
banner