Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. september 2010 21:35
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Schwarzer bersýnilega ósáttur
Mark Schwarzer markvörður Fulham hefur gefið í skyn að hann sé ósáttur með að hafa ekki fengið að yfirgefa félagið og halda til Arsenal.

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal var á höttunum eftir Schwarzer í allt sumar en uppskar ekkert út úr því. Schwarzer hefur enn ekki spilað leik fyrir Fulham á tímabilinu, heldur hefur David Stockdale staðið á milli stanganna með prýði.

Talið var að Fulham vildi fá þrjár milljónir punda fyrir þennan 37 ára landsliðsmarkvörð Ástralíu og þótti Arsenal það vera of hátt verð. Schwarzer vildi ekki tjá sig beint um málið en var klárlega ósáttur.

„Ég vil helst ekki tjá mig," sagði hann.

„Mig langar ekki að segja neitt því annars get ég sagt eitthvað vitlaust," bætti hann við, augljóslega hundfúll.
Slapp
banner
banner
banner
banner