Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. september 2010 21:34
Hannes Daði Haraldsson
Heimild: Sky Sport 
Robin Van Persie frá í sex vikur
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Arsenal staðfesti það í dag að hollenski sóknarmaðurinn Robin Van Persie verði frá í tæpar sex vikur vegna ökklameiðsla.

Van Persie meiddist í sigurleik Arsenal gegn Blackburn og mun hann ekki leika með félaginu fyrr en um miðjan október.

Þetta er mikið áfall fyrir Arsenal enda stutt í að Meistaradeildin fari að hefjast.

Stuðningsmenn liðsins geta þó huggað sig við það að franski miðjumaðurinn Samir Nasri snýr aftur til æfinga í vikunni eftir meiðsli sem hann varð fyrir í opnunarleik deildarinnar gegn Liverpool.
Slapp
banner
banner