,,Við vorum mjög góðir varnarlega fannst mér. Við hefðum kannski mátt spila boltanum betur en það var ömurlegt að fá þetta mark á sig á 91.mínútu," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 1-0 tap Íslands gegn Danmörku í kvöld.
Gylfi Þór átti tilraun í upphafi síðari hálfleiks en hann átti þá skot yfir úr vítateigsboganum.
,,Ég bara á að hitta markið og skora úr þessu. Ég skaut yfir í þetta skipti en næsta fer inn."
Næsti leikur Íslands er á móti Portúgal þriðjudaginn 12.október næstkomandi.
,,Það væri ekki leiðinlegt að taka þrjú stig á móti Portúgal. Við þurfum að fara vel yfir leikinn hjá þeim. Við þurfum örugglega að verjast á stórum kafla leiksins en auðvitað viljum við fá þrjú stig þegar við erum á heimavelli."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















