Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. september 2010 21:51
Matthías Freyr Matthíasson
Umfjöllun: Grátlegt tap hjá Íslandi á Parken
Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Danmörk 1 - 0 Ísland
1-0 Thomas Kahlenberg ('90)

Danmörk tók á móti Íslandi á Parken í kvöld í leik í undankeppni EM. Þetta var annar leikur Íslenska liðsins í undankeppninni en fyrsti leikurinn fór fram á síðasta föstudag á Íslandi gegn Noregi eins og flestir vita.

Danirnir byrjuðu leikinn mun betur en Íslendingarnir og í raun og veru áttu þeir allan fyrri hálfleikinn. Þeir áttu færi strax á 2 mínútu leiksins þegar Nicklas Pedersen fékk sendingu inn í teig en móttaka hans á boltann var slök en einnig stóð íslenska vörnin sig vel.

Danir sóttu mjög mikið og fengu mikið að vera með boltann, þeir náðu þó ekki að skapa sér mörg hættuleg færi en einhver þó. Á 17 mínútu leiksins sendi Lars Jackobsen fyrir mark Íslands en enn og aftur stóð vörnin sína plikt.

Á 22 mínútu sendi Dennis Rommerdahl boltann fyrir mark Ísland en Dennis fékk mjög oft tækifæri til að hlaupa upp vinstri kantinn í fyrri hálfleik. Boltinn barst út í teiginn og Krohn-Delih tók boltann á lofti og skaut yfir markið.

Indriði Sigurðsson gerði sig svo sekan um hættuleg varnarmistök þegar honum mistókst að hreinsa háan bolta frá markinu, boltinn fór til fyrrnefnds Rommerdahl sem sendi góða sendingu á Kahlenberg sem var á auðum sjó í teignum en Gunnleifur varði skot hans vel.

Fyrsta skot Íslands kom ekki fyrr en á 36 mínútu en það var Rúrik Gíslason sem átti það utan af velli. Skot hans var slakt og markmaður Dana varði auðveldlega.

Liðin fóru því jöfn inn í klefa í hálfleik og var það gríðarlega vel af sér vikið hjá drengjunum. Og þeir byrjuðu líka seinni hálfleikinn af miklum krafti. Aron Einar tók aukaspyrnu á 48 mínútu, boltinn barst hátt inn í teig á fjærstöngina og þar var Kristján Örn mættur en misreiknaði sig og náði ekki til boltans því miður fyrir Ísland.

Gylfi Sigurðsson átti svo skot rétt fyrir utan vítateig Dana á 53 mínútu eftir góða sendingu frá Aroni Einari en boltinn fór yfir markið. Hefði Gylfi hitt boltann betur hefði hann hugsanlega farið inn. En það er ekki spurt að því í fótbolta,

Á 69 mínútu kom svo hættulegasta færi leiksins þegar Nicklas Pedersen fékk háa sendingu og skallaði boltann rétt yfir markið.

Það gerðist ekki margt eftir þetta fyrr en undir lok leiks. Bæði lið sóttu á víxl án þess að skapa sér hættuleg færi. Þó er óhætt að segja það að Íslenska liðið var stóran hluta seinni hálfleiksins.

Á 83 mínútu fengu Danir hornspyrnu, boltinn barst til Skoubo í teignum sem náði góðu skoti en Gunnleifur varði snilldarvel. Íslenska liðið færði sig aftar á völlinn og ætluðu að freista þess að halda stiginu á meðan Danir sóttu og sóttu án þess að skapa færi.

Því kom það eins blaut tuska í andlitið á 90 mínútu leiksins þegar Thomas Kahlenberg sem var einn og óvaldur í teignum náði slöku skoti sem því miður fór í mark Íslands.

Þeir hefðu svo getað bætt við einu marki í viðbót á lokamínútu uppbótartímans þegar Rommerdahl komst einn að marki Íslands og náði skoti sem fór framhjá Gunnleifi en Sölvi Geir bjargaði á línu. Niðurstaðan því 1-0 tap gegn Dönum sem áttu svo sannarlega ekki skilið sigur úr þessum leik.

Íslenska liðið spilaði á köflum virkilega fínan fótbolta. Voru agaðir í sínum aðgerðum og hefðu með réttu átt að fá stig úr leiknum. En svona er fótboltinn stundum.

Ísland: Gunnleifur Gunnleifsson, Birkir Már Sævarsson, Kristján Örn Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen (F) Indriði Sigurðsson, Rúrik Gíslason, Gylfi Þór Sigurðsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Heiðar Helguson
Varamenn: Árni Gautur Arason, Ragnar Sigurðsson, Ólafur Ingi Skúlason, Veigar Páll Gunnarsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Birkir Bjarnason, Kolbeinn Sigþórsson.

Danmörk: Anders Lindegaard, Lars Jacobsen, Simon Kjær, Daniel Agger, Leon Jessen - Thomas Kahlenberg, Christian Eriksen, Christian Poulsen (F) Dennis Rommedahl, Nicklas Pedersen, Michael Krohn-Dehli.
Varamenn: Jonas Lössl, Willam Kvist Jorgensen, Per Koldrup, Martin Vingaard, Michael Silverbauer, Mads Junker, Morten Skoubo.
Slapp
banner
banner