Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. september 2010 22:48
Magnús Már Einarsson
Vináttuleikur: Argentína rúllaði heimsmeisturunum upp
Argentína 4 - 1 Spánn
1-0 Lionel Messi ('10)
2-0 Gonzalo Higuain ('14)
3-0 Carlos Tevez ('33)
3-1 Fernando Llorente ('84)
4-1 Sergio Aguero ('90)

Argentína sigraði heimsmeistara Spánverja örugglega 4-1 í vináttuleik fyrr í kvöld.

Argentínumenn voru komnir í 3-0 eftir 33 mínútur en í síðari hálfleik skoruðu bæði lið eitt mark.

Pepe Reina, markvörður Liverpool, fékk tækifæri í marki Spánverja og hann átti sök á þriðja markinu. Reina rann þá þegar hann ætlaði að sparka fram og Carlos Tevez nýtti sér það með því að ná boltanum og skora.

Smelltu hér til að sjá markið hjá Tevez
Slapp
banner
banner