Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. september 2010 10:44
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Gerrard hrósar Rooney fyrir leikinn í gær
Steven Gerrard landsliðsfyrirliði Englands hrósaði Wayne Rooney í hástert fyrir leik sinn gegn Sviss í undankeppni EM í gær, en Rooney skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í alvöru keppni síðan í september 2009.

Þessi öflugi framherji Manchester United hefur glímt við erfiðleika í einkalífinu undanfarið en landsliðsþjálfarinn Fabio Capello valdi hann samt sem áður í byrjunarliðið í Basel í gærkvöldi. Rooney þakkaði pent fyrir sig með því að skora fyrsta mark leiksins og átti hann stóran þátt í 3-1 sigri Englendinganna.

Gerrard var að vonum hæstánægður með Rooney og hrósaði honum eftir leikinn.

„Ég held að þetta mark hafi verið frábært fyrir Wayne. Öll umræðan fyrir leikinn tengdist honum þannig að það var mjög gott fyrir hann að skora,“ sagði Gerrard.

„Í kvöld (gærkvöldi) var hann frábær, rétt eins og á föstudaginn, og ég er viss um að hann mun reynast okkur dýrmætur í undankeppninni.“

Englendingar eru með sex stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni eftir að hafa lagt Búlgaríu af velli, 4-0, í fyrri leiknum, og unnið síðan þennan góða útisigur á Sviss.
Slapp
banner
banner