Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 08. september 2010 09:12
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Toure: Missti fyrirliðabandið svo að Tevez yrði næsti Maradona
Kolo Toure segir að áform um að gera Carlos Tevez að næsta Diego Maradona hafi kostað sig fyrirliðabandið hjá Manchester City, en segist þó ekki hafa mótmælt neinu þegar kom að því að skipta um fyrirliða.

Eftir að Toure gekk til liðs við City frá Arsenal fyrir 15 milljónir punda í fyrra var hann umsvifalaust gerður að fyrirliða, en þegar Roberto Mancini tók við stjórnartaumunum hjá liðinu gerði hann Tevez að fyrirliða. Sagði Mancini að hann teldi að það myndi hjálpa Tevez að verða hinn næsti Maradona.

„Stjórinn kom til mín í upphafi tímabilsins og sagði mér að hann ætti erfiða ákvörðun fyrir höndum,“ sagði Toure.

„Hann sagði mér að hann myndi gera Carlos að fyrirliða með það fyrir höndum að láta hann gegna mun stærra hlutverki innan liðsins.“

„Hann nefndi meira að segja Diego Maradona hjá Napoli sem dæmi, en hann gerði ótrúlega hluti eftir að hann var útnefndur fyrirliði þeirra.“

„Ég sagði honum að það væri ekkert vandamál af minni hálfu. Ég er ekki mikilvægari heldur en liðið og ákvörðunin var tekin með hagsmuni Manchester City að leiðarljósi.“

Slapp
banner
banner
banner