Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. september 2010 09:47
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Verdens Gang 
Egil „Drillo“ Olsen: 60 prósent líkur á að við komumst á EM
Drillo á æfingu Noregs í Kaplakrika fyrr í mánuðinum.
Drillo á æfingu Noregs í Kaplakrika fyrr í mánuðinum.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Egil „Drillo“ Olsen landsliðsþjálfari Noregs var að vonum hæstánægður með 1-0 sigur liðsins gegn Portúgal í undankeppni EM í gær. Segir hann að sex stig úr fyrstu tveimur leikjunum, gegn Íslandi og Portúgölum, sé jafnvel betra en hann þorði að vona.

„Sex stig í fyrstu tveimur leikjunum er meira en ég bjóst við og býsna magnað. Ég hafði vonast eftir fjórum stigum,“ sagði Drillo.

„Fyrir þennan leik fannst mér vera helmingslíkur á að við gætum komist í úrslitakeppnina en eftir þennan leik er ég til í að hækka þær upp í 60 prósent. Nú skiptir það miklu máli að við gefum ekkert eftir í baráttunni um annað af efstu sætunum í riðlinum. Við höfum getuna til að klára Kýpur og Ísland á heimavelli og þá erum við komnir með 12 stig.“
Slapp
banner