Heimild: VG
John Carew leikmaður Aston Villa og norska landsliðsins var að vonum hæstánægður með 1-0 sigur Noregs gegn Portúgal í undankeppni EM 2012 í gærkvöldi. Carew átti stóran þátt í marki heimamanna en þurfti að fara af velli sjö mínútum fyrir leikhlé vegna meiðsla.
Mark Norðmanna var einkar klaufalegt af hálfu gestanna, en Carew hljóp að markverðinum sem var að dóla með knöttinn og náði að tækla tuðruna til Erik Huseklepp sem þakkaði fyrir sig og skoraði.
„Svona hlutir geta alltaf gerst. Huseklepp var á réttum stað á réttum tíma og náði til boltans á hárréttri stund. Þetta var frábært,“ sagði Carew.
Carew sat inni í klefa með kælipoka á lærinu og sá restina af leiknum í sjónvarpinu.
„Þetta var mjög stressandi, ef ég á að segja eins og er. Sérstaklega seinasti stundarfjórðungurinn. En ég vil hrósa stuðningsmönnunum í Ullevaal. Þeir voru frábærir allan tímann, fyrir leikinn og á meðan honum stóð og eftir hann. Þetta var ótrúlega skemmtilegt,“ sagði hæstánægður Carew.


