Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 08. september 2010 11:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Cahill til Inter?
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku götublöðunum.



Tottenham mun gera aðra tilraun til að fá Ashley Young frá Aston Villa þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Tottenham reyndi að fá þennan 25 ára gamla leikmann í sumar en eftir að Martin O'Neill hætti hjá Aston Villa voru viðræður settar í bið. (TalkSport)

Ibrahim Afellay kantmaður PSV Eindhoven segist hafa hafnað Everton í sumar. (Daily Mirror)

Riccardo Montolivo, leikmaður Fiorentina, segist ekki vera á leið til Arsenal. (Daily Mirror)

Mark Schwarzer, markvörður Fulham, vonast til að ná að semja við annað félag í janúar þannig að hann getið farið næsta sumar. Fulham neitaði Schwarzer um að fara til Arsenal í sumar. (Daily Mirror)

Simon Cox, framherji WBA, gæti farið aftur til Reading á láni. (Daily Mail)

Yuri Zhirkov ætlar að íhuga framtíð sína hjá Chelsea ef hann verður áfram lítið notaður. (Daily Mail)

Inter ætlar að bjóða í Gary Cahill miðvörð Bolton í janúar en leikmaðurinn kosta 17,25 milljónir punda. (IMScouting)

Aston Villa er ekki búið að kynna Gerard Houllier til sögunnar sem knattspyrnustjóra þar sem óvíst er hver verður aðstoðarmaður hans. Houllier vill fá Phil Thompson sem vann með honum hjá Liverpool en Aston Villa vill halda Kevin MacDonald sem hefur stýrt liðinu tímabundið að undanförnu. (Daily Mirror)

Houllier hefur samþykkt þriggja ára samning við Villa en Thompson mun ekki koma með honum til félagsins. Hann ætlar frekar að halda áfram að vinna sem sérfræðingur hjá Sky. (The Guardian)

Lögreglan í Liverpool gæti aukið öryggisgæsluna þegar Wayne Rooney og félagar í Manchester United heimsækja Everton á laugardag. Rooney á von á óblíðum móttökum frá stuðningsmönnum Everton eftir fréttir sem hafa birst í ensku blöðunum í vikunni. (Daily Mirror)
Slapp
banner