Heimild: UEFA.com
Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs Íslands var ekki ánægður með spilamennsku liðsins í 3-1 tapi gegn Tékkum í gær en þrátt fyrir tapið tókst liðinu að komast í umspil um sæti í lokakeppni Evrópumótsins.
,,Við töpuðum leiknum en við erum ánægðir því við erum í umspili og það er í fyrsta sinn sem Ísland kemst þangað," sagði Eyjólfur á vef UEFA.
,,Liðið mitt spilaði ekki vel í dag en við misstum sjö leikmenn í A-landsliðið. Við viljum núna standa okkur vel í umspilinu, það verður erfitt, en við reynum."
Dregið verður í umspil á föstudagsmorgun en það lið sem vinnur samanlagt í tveimur leikjum, heima og heiman 9. og 13. október, kemst í úrslitakeppnina í Danmörku næsta sumar.


