Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. september 2010 12:18
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Arsenal ætlar að skoða meiðslin hjá Walcott
Læknalið Arsenal mun skoða ökklameiðslin hjá Theo Walcott síðar í dag.

Þessi 21 árs gamli leikmaður meiddist í 3-1 sigri Englendinga gegn Sviss í gærkvöldi.

Hann fór beint í myndatöku á sjúkrahúsi en ekki er ennþá ljóst hversu lengi Walcott verður frá.

,,Ég talaði við Theo og hann sagði mér að þetta væri ekki stórt vandamál. Ég sagði 'tvær vikur' og hann sagði að þetta sé minna," sagði Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga eftir leikinn í gær.
Slapp
banner
banner