Knattspyrnudeild Víkings og Berserkir standa fyrir rútuferð á leik KA og Víkings á Akureyri næstkomandi laugardag.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Víkinga því það gæti jafnvel farið svo að úrslitin í deildinni ráðist í þessum leik.
Því vilja Víkingar taka stóran hóp stuðningsmanna með sér norður og bjóða upp á rútuferð.
Rútan leggur af stað úr Víkinni klukkan 08:00 á laugardaginn og er ljóst að mikið fjör verður á leiðinni. Haldið verður heim á leið strax að leik loknum.
Miðinn í rútuna fram og til baka ásamt miða á leikinn kostar einungis kr. 2.500,-
Tekið er á móti bókunum í tölvupósti á netfangið [email protected]
Einungis eru 50 sæti í boði.




