Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 08. september 2010 18:16
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
James Vaughan til Crystal Palace á láni (Staðfest)
Crystal Palace hefur fengið James Vaughan framherja Everton á láni í þrjá mánuði.

Þessi 22 ára gamli leikmaður er á eftir Louis Saha og Jermaine Beckford í röðinni hjá Everton og hann hefur núna fengið leyfi til að fara til Palace.

Vaughan kom inn í lið Everton árið 2005 en meiðsli hafa sett strik í reikninginn síðan þá.

Á síðustu leiktíð var Vaughan í láni hjá bæði Derby og Leicester en hann mun líklega leika sinn fyrsta leik með Crystal Palace þegar liðið mætir Reading um helgina.
Slapp
banner
banner