Dalvík/Reynir og Tindastóll tryggðu sér í kvöld sæti í 2. deild karla eftir að hafa lagt KB og Árborg af velli í úrslitakeppni 3. deildar.
Dalvík/Reynir vann KB samanlagt eftir jantefli á Dalvík í kvöld en fyrri leiknum hafði lokið með 1-0 sigri þeirra svo samanlögð úrslit 3-2. KB hafði reyndar komist yfir í kvöld svo nokkur spenna var þar til heimamenn skoruðu tvö. KB skoraði svo í lokin og jafnaði metin í 2-2. Í kjölfarið setti KB markmann sinn í framlínuna til að freista þess að skora aftur en það tókst ekki svo Dalvík/Reynir er komið upp.
Í hinum leiknum á Sauðárkróki tryggði Tindastóll sig áfram en þar var líka mikil spenna því Árborg komst í 1-3 og þurfti því aðeins eitt mark til að komast áfram. Það tókst ekki að setja það mark og því fór Tindastóll áfram, samanlagt 4-3.

Dalvík/Reynir 2-2 KB (Samanlagt 3-2, Dalvík/Reynir upp)
0-1 Stefán Ingi Gunnarsson
1-1 Jóhann Himar Hreiðarsson
2-1 Markús Darri Jónasson
2-2 Davíð Teitsson
Tindastóll 1-3 Árborg: (Samanlagt 4-3, Tindastóll upp)
0-1 Guðmundur Ármann Böðvarsson
1-1 Bjarki Árnason
1-2 Hartmann Árnason
1-3 Guðmundur Ármann Böðvarsson