Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 08. september 2010 20:12
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Gerard Houllier tekinn við Aston Villa (Staðfest)
Gerard Houllier hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Aston Villa en þetta var staðfest í kvöld.

Houllier, sem er 63 ára, tekur við Aston Villa af Kevin MacDonald sem hefur stýrt liðinu tímabundið síðan Martin O'Neill hætti fyrir tæpum mánuði.

Houllier hættir sem tæknilegur ráðgjafi hjá franska knattspyrnusambandinu til að taka við Villa.

Hann stýrði Liverpool frá 1998-2004 áður en hann tók við Lyon þar sem hann var í tvö ár.

Houllier verður formlega kynntur til sögunnar sem stjóri Aston Villa á föstudag og fyrsti leikur hans við stjórnvölinn verður gegn Eiði Smára Guðjohnsen og félögum í Stoke á mánudag.
Slapp
banner